Gott að vita


Pantanir:

Hægt er að panta með því að senda okkur skilaboð í gegnum síðuna, smella á Panta hnappinn og fylla þar út viðeigandi upplýsingar.

 

Einnig er velkomið að senda okkur tölvupóst á caris@caris.is eða hringja í okkur.

 

Kolbrún 897 5020  /  Sigríður 895 8993     

 

Munið að tilgreina nafn á vöru og vörunúmer þegar pantað er.

 

Greiðslufyrirkomulag:

Eins og er erum við ekki með rafrænan posa svo greiðslur fara aðallega fram í gegnum bankamillifærslur á reikning okkar 0315-26-0406  k.t. 190475-6039.

 

Afhending:

Vörur eru afgreiddar og sendar samdægurs berist pöntun og greiðsla til okkar fyrir hádegi, annars næsta virkan dag eftir að pöntun og greiðsla berst.

Allar vörur eru sendar með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Caris heildverslun ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Allar vörur eru sendar í bögglapósti og eru sendingar því rekjanlegar og tryggðar. Íslandspóstur keyrir út bögglapóst á bilinu 17 –22 alla virka daga og ætti að berast móttakanda 2 –3 dögum eftir að pöntun er gerð.

Hægt er einnig að sækja vöruna til okkar samkvæmt samkomulagi.

 

Skilaréttur:

Heimilt er að skila vöru innan 14 daga frá því að hún er send og fá fulla endurgreiðslu. Framvísa þarf reikningi og varan þarf að vera ónotuð í upprunalegum umbúðum. Kaupandi greiðir sendingarkostnað við skil á vöru nema um augljósan galla sé að ræða.

 

Við hjá Caris höfum lagt metnað okkar í það að hafa vefisíðuna eins einfalda í notkun og mögulegt er. Ef einhver vandkvæði skyldu koma upp, biðjum við ykkur um að hafa samband við okkur í síma eða tölvupósti og við leysum úr málinu eins fljótt og hægt er.